Ekki sjálfsagt að fylgja esb í öllu!

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að harðar deilur um innflutningsbann Rússa endurspegli óvild í garð sjávarútvegsins á Íslandi. Það beinlínis hlakki í mönnum yfir því að þjóðin geti orðið af tugmilljarða útflutningstekjum.

Þetta kemur  fram í ítarlegu viðtali við Bjarna í Morgunblaðinu í dag þar sem hann segir það ekki vera sjálfsagt mál að fylgja viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins gefn Rússlandi, en af orðum hans má ráða að ríki innan ESB séu þar ein á ferðinni, en sem kunnugt er taka fjölmörg önnur ríki þátt í aðgerðunum, svo sem Noregur, Bandaríkin, Kanada, Japan, Nýja-Sjáland og Ástralía: \"Það á ekki að vera sjálfsagt að fylgja ESB að máli í einu og öllu í utanríkismálum. Við erum ekki aðilar að sameiginlegri utanríkisstefnu ESB,\" segir Bjarni í viðtalinu.

Bjarni segir að viðskiptaþvinganirnar hafi í raun enga beina tengingu við Ísland og þess vegna hafi hann komið á framfæri  efasemdum í ríkisstjórn: \"Mér sýnist að segja megi um nánast allan listann að hann hafi óskaplega takmarkaða snertifleti við Ísland, ef einhverja. Ekki erum við mikið í því að selja hergögn til dæmis og ekki erum við að fjármagna rússneska banka.\"

Bjarni þvertekur fyrir að flokkur hans sé að breyta algerlega um kúrs í utanríkismálum, að hverfa frá vestrænum lýðræðisgildum og halla sér að þjóðum einræðis og mannréttindabrota: \"Mér finnst þetta vera algerlega innantóm orð. En maður les líka á milli línanna hjá sumum að þar skín í gegn óvildin í garð sjávarútvegsins og þeirra fyrirtækja sem stunda útgerð á Íslandi. Maður verður hálfdapur við að lesa slík skrif vegna þess að þau eru til vitnis um að menn eru að tapa tengslum við ræturnar. Þegar stutt er í að það hlakki í sumum yfir því að þjóðin gæti orðið af tugmilljarða útflutningstekjum. Að ná höggi á fiskveiðistjórnunarkerfið er orðið sjálfstætt markmið hjá þessu fólki. En fiskveiðar og arðbært stjórnkerfi er það sem hefur komið undir okkur fótunum, með þessu höfum við byggt upp það samfélag sem við búum í. Það er ótrúlega dapurlegt að lesa þetta,\" segir Bjarni í Morgunblaðinu í dag.