Björn Þorláksson fráfarandi ritstjóri Akureyri vikublaðs metur það svo ða fyrr frjósi í helvíti en að hann ritstýri blaði í fjölmiðlaveldi Björn Inga Hrafnssonar sem hefur keypt öll bæjarblöðin af útgáfufélagi Ámunda Ámundasyni.
Bæði Björn og Ingimar Karl Helgason, ritstjóri Reykjavíkur Vikublaðs, segjast báðir hafa frétt af sölunni eftir að hún var um garð gengin, en Björn skrifar um söluna á fésbók sinni í dag: \"Þá liggur það fyrir, kæru vinir. Var í viðtali á Harmageddon áðan og var spurður hvort ég myndi dansa við Binga ef hann byði mér ritstjórastöðu við það sem hann heldur að verði áfram hægt að kalla Akureyri vikublað en var blaðið okkar, okkur hefur verið sagt upp og hann er því ekki með neina vöru lengur að selja. Svar mit á Harmageddon eftir að hafa hugsað málið í tvær nætur: \"Ekki séns í helvíti, Björn Ingi Hrafnsson.\"\"
Og Björn ávarpar nýjan eiganda Akureyri vikublaðs í færslu sinni: \"Ég gæti aldrei átt trúnað við þig, því ég trúi ekki að þú hafir trúnað við almannahagsmuni að leiðarljósi með þinni útgáfustarfsemi. Held að þín áhersla sé á hreina sérhagsmuni. Sjálfstæðir og reyndir blaðamenn eru ekki skógarþrastarungar sem bíða með opinn gogginn eftir þínum peningum, sem enginn veit hvaðan koma. Lifi frelsið og gagnrýnin upplýsing. Netið færðu seint keypt upp!“\"
Vefpressan, útgáfufélag sem Björn Ingi Hrafnsson er í forsvari fyrir, hefur keypt útgáfurétt á tólf blöðum útgáfufélagsins Fótspors. Meðal þeirra eru vikublöð sem dreift hefur verið ókeypis í Reykjavík, á Akureyri og í Kópavogi.