Ekki samráð við bændur

Aðgerðir landbúnaðarráðherra til að draga úr framleiðslu kindakjöts eru ekki ákveðnar í samráði, segja Bændasamtök Íslands og Landssamtök sauðfjárbænda í yfirlýsingu í dag.

Markmiðið með aðgerðunum er að fé verði fækkað um 20 prósent með því m.a. að gefa bændum kost á því að hætta sauðfjárframleiðslu en halda 90 prósent af  greiðslum samkvæmt sauðfjársamningi í fimm ár, frá 2018- 2022.

Í tilkynningu bænda segir m.a.:  „Bændur hafa lagt fram tillögur til stjórnvalda sem miða að því að taka heildstætt á þeim vanda sem við blasir. Lykilatriði í þeim lausnum er að virkja tímabundnar aðgerðir til sveiflujöfnunar, svo sem að gera afurðastöðvum kleift að taka sameiginlega ábyrgð á útflutningi kindakjöts. Þær hugmyndir hafa ekki fengið brautargengi og staðan því óbreytt. Hættan er sú að þær aðgerðir sem landbúnaðarráðherra nú leggur til séu ekki nægar og verði aðeins til þess að draga ástandið á langinn”.