Hegðun ekki samfélagslega viðurkennd

Sveinn Andri Sveinsson lögmaður nýtir sér frægð sína og áhrif til að komast í kynni við ungar konur. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson ritstjórar Stundarinnar héldu þessu fram í útvarpsþættinum Harmageddon fyrir helgi. Þar var fjallað um ástæður þess að í tölublaði síðustu viku ver Stundin fjórum blaðsíðum undir rannsóknarúttekt um Svein Andra Sveinsson lögmann og kynni hans við ungar stúlkur. Brot um málið má lesa hér, þar sem lögmaðurinn kallar ólögráða stúlku \"little sexy bitch\".

Í umfjöllun Stundarinnar eru nefnd dæmi til sögunnar um að lögmaðurinn fari ítrekað yfir mörk. Hann sendi einkaskilaboð, leiti í félagsskap ungra stúlka, bjóði áfengi, vilji ræða við skjólstæðinga frekar í heita pottinum heima en á skrifstofunni. Sjálfur vill lögmaðurinn ekki ræða málið, hvorki við Stundina né aðra fjölmiðla, enda líti hann svo á sem um einkamál sé að ræða.
16 ára stúka varð ófrísk eftir Svein Andra skv. úttekt Stundarinnar þegar lögmaðurinn var 47 ára gamall. Hann neitaði fyrst að vera pabbinn en eftir faðernispróf kom annað í ljós. Fyrst eftir að frétt af málinu var sögð fór Sveinn Andri fram á að blaðamaður DV greiddi sér 10 milljónir króna í bætur. Hann féll frá því síðar. Stúlkan sem eignaðist barnið með Sveini Andra kærði lögmanninn upphaflega fyrir tælingu en féll svo frá kærunni. Einnig var rætt í Harmageddon hve lögmaðurinn hefur oft talað fyrir gagnsókn á hendur þeim sem kæra fyrir brot.
Jón Trausti sagði Svein Andra nota sér frægð sína sem lögmanns til að komast í kynni við stelpur. Guðmundur Brynjólfsson pistlahöfundur á Hringbraut með meiru skrifaði bók fyrir jólin, Líkvöku, þar sem hann notast m.a. við afrit af tölvusamskiptum milli Sveins Andra og ungrar stúlku. Í Stundinni segir í úttektinni frá ungri stúlku sem framdi sjálfsvíg á Vogi en hún hafði áður átt í kynnum við Svein Andra.
\"Það er verið að brjóta óformleg viðmið, þetta er ekki sanfélagslega viðurkennd hegðun,\" sagði Jón Trausti á Harmageddon og tók fram að umfjöllun blaðsins snerist ekki um manninn heldur málaflokkinn. Að virðing og áhrifamáttur væri notuð til að teygja viðmið sem gæti gefið hæpin skilaboð til annarra karla með aldur og völd og langanir þeirra til ungra kvenna.