Morgunblaðið birti í gær frétt af leikskólavandræðum bæjarstjóra Seltjarnarness. Sú hafði lofað 30 börnum leikskólaplássi fyrir kosningar. Eftir kosningar kom í ljós að hvorki höfðu plássin verið byggð né heldur starfsfólk ráðið til að annast börnin. Nú eru foreldrar þessara barna í þeirri stöðu að hafa engin úrræði fyrir börn sín.
Enn vantar átta starfsmenn til að hægt verði að opna deildir fyrir þessi börn, en það samsvarar því að 300 starfsmenn vanti í leikskólakerfið í Reykjavík. Skammur tími er til stefnu, en sveitarfélagið hefur gripið til þess ráðs að hækka laun leikskólastarfsfólks um 40 þúsund krónur til að laða að starfsmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur einráður á Seltjarnarnesi allar götur frá árinu 1950. Flokkurinn fékk 46% atkvæða í síðustu kosningum, en fékk þrátt fyrir það meirihluta bæjarfulltrúa. Þrír aðrir flokkar buðu fram og hlutu Samfylking og Neslisti/Viðreisn kjörna fulltrúa í bæjarstjórn. Mikil óánægja er á meðal foreldra leikskólabarna á Seltjarnarnesi með þróun mála og ljóst að kjörtímabilið hefst ekki á góðum nótum fyrir meirihluta Sjálfstæðisflokksins.