Ekki öruggt að perla komist á flot

Ekki tókst að lyfta sanddæluskipinu Perlu af hafsbotni í Reykjavíkurhöfn í gær, en tilraunum í þá veru var hætt á elleftu stundu í gærkvöld þegar ´rúður í brú skipsins gáfu sig undan þrýstingi og sjór flæddi inn í skipið.

Undirbúningur hafði staðið í tvo daga er dæling hófst, en reyna á að nýju að koma skipinu á flot í dag. Fjöldi kafara og annarra sérfræðinga kemur að verkinu.
 
Ekki er sjálfgefið að það takist að lyfta skipinu á hafsbotni, en Gísli Gíslason, framkvæmdastjóri Faxaflóahafna mat það svo í morgun í samtali við Morgunútvarp Rásar 2 að meiri líkur en minni væru á því. Þá eru taldar helmingslíkur á að skipið sé ónýtt, en ljóst er að innviðir þess eru illa leiknir og óvíst er hvort hægt verður að bjarga vél skipsins.
 

Í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum segir að dælingin hafi farið vel af stað og gengið ágætlega þar til gluggar í brú gáfu sig og sjór komst í stýrishús skipsins. Þá var dælingu hætt og ráðstafanir gerðar til að þétta skipið betur.

Ennfremur segir að Björgun ehf. hyggist gera frekari ráðstafanir í ljósi þess sem fyrstu aðgerðir hafa leitt í ljós og halda áfram aðgerðum á fimmtudag. Vakt verður við skipið í nótt en ekki er gert ráð fyrir að dæling úr skipinu hefjist að nýju fyrr en síðla fimmtudags.