Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki minnst einu orði á nauðsyn þess að breyta byssulöggjöf Bandaríkjanna í viðbrögðum sínum við hinu hörmulega fjöldamorði í gær í framhaldsskóla í Parkland í Florida þar sem 17 létu lífið, nemendur og starfsfólk skólans.
Gert er ráð fyrir að forsetinn fjalli um morðin í ávarpi nú síðdegis.
Trump sagði á Twitter í morgun að morðinginn hefði sýnt ýmis merki um geðtruflanir og að skólafélagar og nágrannar vissu að hann yrði til vandræða. Svona lagað ætti fólk alltaf að láta vita af. Bent hefur verið á að um þetta leyti í fyrra undirritaði Trump afnám löggjafar frá Obama árunum, sem hafði gert fólki með geðtruflanir erfiðara að kaupa byssur.
Árásin var 18. skotárásin í bandarískum skólum á þessu ári.
Svo virðist sem fjöldamorðinginn, Nikolas Cruz, hafi keypt vopnið, hálfsjálfvirkan AR-15 hríðskotariffil, með lögmætum hætti og haft til þess tilskilin leyfi. Svo virðist sem bæði kennarar og alríkslögreglan FBI hafi haft uppi viðvaranir um Cruz, en ekki er ljóst hvers vegna þær viðvaranir komu ekki að gagni.