Maður sem grunaður er um að hafa reynt að nauðga tveimur stúlkum í miðbæ Reykjavíkur í desember síðastliðnum hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 16. febrúar næstkomandi.
Röskur mánuður er nú liðinn frá því maðurinn fór fyrst í gæsluvarðhald, en það var 18. desember síðastliðinn, en meint brot hans áttu sér stað fimm dögum fyrr, að því err fram kemur í frétt á visir.is í dag.
Í úrskurði héraðsdóms vegna varðhaldsins kemur fram að þau brot sem manninum eru gefin að sök séu svo alvarleg \"að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á [...]“
Lýsingar af vettvangi hinna meintu nauðgana eru sláandi. Eftir fyrri ætlaða árás kom lögreglan að stúlku í Tjarnargötu um nóttinaþar sem hún sat í miklu uppnámi í snjónum í rifnum buxum og grét. Hún lýsti því að hún hafi verið að ganga heim úr bænum þegar hún tók eftir manni sem gekk fyrir aftan hana á Tjarnargötunni. Hann gekk mjög nálægt henni, hún hafi orðið hrædd og vikið sér til hliðar svo maðurinn gæti gengið framhjá henni.
Maðurinn hafi hins vegar stoppað ofar í götunni en stúlkan hélt för sinni áfram. Þegar hún hafi svo gengið framhjá manninum hafi hann svo gripið í hana, reynt að taka af henni símann og kallað hana \"bitch.“ Svo hafi hann gripið um munn stúlkunnar, ýtt henni að húsinu, rifið buxurnar hennar og reynt að hneppa frá buxunum sínum.
Stúlkan hafi þá öskrað eins hátt og hún gat en hún sagði lögreglu að hún hafi verið þess fullviss að maðurinn ætlaði að nauðga henni. Hann hafi verið harkalegur við hana en hún öskrað hærra og þá hafi fólk komið að þeim. Við það hafi maðurinn farið.
Af lýsingum að dæma virðist sami maður hafa ráðist á aðra konu aðeins fimm mínútum eftir að tilkynning um fyrri árásina. Sú árás gerðist í Þingholtsstræti, en þar kom lögregla að annarri stúlku sem var grátandi og í miklu uppnámi. Að því er fram kemur í gögnum lögreglu lýsti sú stúlka því yfir að hún hefði verið ein á gangi upp Bankastrætið þegar maður hefði komið aftan að henni og lagt hönd sína yfir axlir hennar. Maðurinn hafi svo gripið fastar og fastar utan um hana og hún reynt að losa sig en hann hafi þá gripið um munn hennar og gengið ákveðið með hana inn Þingholtsstrætið.
Þau hafi ekki verið komin langt inn götuna þegar maðurinn hafi svo kastað henni utan í bíl sem lagt var í Þingholtsstræti og reynt að setjast klofvega yfir hana. Kvaðst stúlkan hafa vera sannfærð um að maðurinn ætlaði að nauðga sér en síðan hafi líklega einhver komið að, því allt í einu hafi maðurinn hlaupið í burtu.
Á meðal gagna í málinu eru upptökur úr eftirlitsmyndavélum miðbæjarins, en myndir úr myndavélunum voru birtar í fjölmiðlum þann 16. desember síðastliðinn að beiðni lögreglu. Fjöldi ábendinga hafi borist lögreglu í kjölfarið og þá hafði maðurinn sjálfur samband við lögreglu og kvaðst þekkja sig á myndunum.
Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að maðurinn neiti sök.