Þær Eygló Harðardóttir, Svandís Svavarsdóttir og Þórhildur Sunna Evarsdóttir hittast til að ræða jafnréttismál i Þjóðbraut í kvöld. Þær ræða um margskonar jafnrétti, jafnrétti kynjanna, öryrkja, trúarhópa, innflytjenda og fleiri.
Meðal annars er rætt um að ekki sé nóg að Alþingi setji lög um jafnrétti. Þeim verði að fylgja eftir og breyta samkvæmt þeim.
Þetta er síðasti málefnaþáttur Þjóðbrautar en kosningasjónvarpið heldur áfram. Á fimmtudagskvöldið verður til að mynda tveggja klukkustunda langur þáttur sem og á sunnudagsmorgnuninn. Daginn eftir kjördag.
Kosningaumfjöllun Hringbrautar er því mikil fyrir og eftir kosningar.