Ekki nóg að dómari dæmi konu sína hart

 

Dómari sem dæmir eiginkonu sína mjög hart fyrir léttvægt brot er eins vanhæfur til að dæma hana og ef dómurinn hefði orðið vægur.
Þetta sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar um mál Sigmundar Davíðs í Vikulokunum á Rás 1 í morgun. Hann sagði gengið gegn þeirri meginreglu í málinu að allt væri uppi á borðinu. Nóg væri að vafi skapaðist um hæfi. Væri slæmt ef Sigmundur Davíð sæti áfram. Gagnýnin beindist að því að vera með fé í skattaskjólum og mikilvægt væri að fá kosningar vegna málsins.
Katrín Jakobsdóttir formaður VG sagði að málið snerist um að fara með fé, þau hafi orðið til á 10. áratugnum, hvort sem fólk borgi skatta eða ekki sé miklu erfiðara að sannreyna það en í löndum sem nýta sér reglur.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, varði Sigmund í umræðuþættinum og sá ekki að hann hefði gert neitt af sér.
Katrín Jakobsdóttir sagði að ekkki gengi upp að forsætisráðherra væri með eigin siðferðiskenningar. \"Við þurfum að sammælast um að vinna eftir reglum og þær þurfa ekki að vera lögbundnar.\"
Þáttastjórnandi benti einnig á ítrekuð tengsl Bjarna við fjármálaveldi eigin ættar, Borgun, Vafningsmálið, aflandsfélag á Seychelles-eyjum. Það væri snjóbolti sem hljóti að veikja Bjarna meira og meira í pólitísku embætti.
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði númer eitt tvö og þrjú að menn hafi greitt skatta af þessum félögum.