Ekki missa af þessum þáttum í kvöld á hringbraut: saga verkalýðsbaráttunnar á íslandi

Heimildaþættirnir Verkalýðsbaráttan á Íslandi, sagan og lærdómurinn, sem sýndir voru á Hringbraut síðastliðið haust vöktu mikla athygli. Eins og titillinn gefur til kynna fjalla þeir um sögu verkalýðsbaráttunnar á Íslandi. Þættirnir sem eru afar vandaðir, og fimm talsins eru í umsjá Sigmundar Ernis Rúnarssonar, sjónvarpsstjóra Hringbrautar, en þættirnir voru framleiddir í samvinnu við ASÍ á vordögum 2018. Í tilefni dagsins verða þættirnir endursýndir í kvöld klukkan 20:00 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.

Kafað er djúpt í saumana á sögu verkalýðsbaráttunnar hér á landi. Í þáttunum er saga verkalýðsbaráttunnar meðal annars sögð af fólkinu sem þekkir hvað mest til hennar. Í fyrsta þættinum er lögð áhersla á húsnæðismálin í áranna rás.

Í öðrum þættinum er lögð áhersla á samnings- og vinnuréttinn í gegnum tíðina. Í þeim þriðja er jafnréttisbaráttan tekin fyrir. Þá er kafað ofan í sögu almannatryggingakerfisins í fjórða þætti og í fimmta og síðasta þættinum er spáð í framtíð verkalýðsbaráttunnar.

Þetta eru þættir sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara en sýning á þáttunum hefst klukkan 20:00 í kvöld á Hringbraut.