Ekki meira byggt í áratugi

Ásta Björg Pálmadóttir sveitastjóri Skagafjarðar segir Morgunblaðinu að frá hruni árið 2008 hafi verið mikil lægð í byggingaframkvæmdum í sveitarfélaginu en nú sé allt komið á skrið.

Ásta Björg segir vanta íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu og að markaðsverð eigna hafi haldið aftur af væntingum íbúa Skagafjarðar. Ekkert atvinnuleysi er í Skagafirði en að fólki sem vill vinna gangi illa að fá húsnæði. Þetta sé að taka breytingum.

Ferðaþjónusta hafi einhver áhrif á eftirspurn eftir íbúðum en það sé einkum önnur atvinnuuppbygging sem glæði eftirspurn. Það er þó ekki aðeins við byggingu íbúða sem verktakar hafa nóg við að hafast. Unnið er við byggingu verksmiðju til prótínframleiðslu og fjölmörg fjós eru í byggingu í Skagafirði og fyrirhugaðar eru endubætur á sundlaug Sauðárkróksbæjar og gervigrasvelli bæjarins.

Öflug fyrirtæki starfa á Skagafirði á borð við Kaupfélag Skagfirðinga og steinullarveksmiðju og Fisk Seafood og Dögun rækjuvinnslu.

rtá

Nánar www.mbl.is www.skagafjordur.is