Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG í Suðvestri, sagði í Þjóðbraut í morgun að hún sjái ekki að VG myndi ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki.
Rósa Björk sagði þar, rétt einsog fleira forystufólk í VG hefur gert, að afar ólíklegt sé að VG eigi erindi í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki. Til þess séu of langt milli flokkanna.
Forystufólk flokkanna mætir hvert af öðru til Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands. Það er undanfari þess að hann ákveður hvert þeirra fái fyrst umboð forseta til stjórnarmyndunnar.