Tvö virk kórónuveirusmit eru nú á Norðurlandi eystra. Greint var frá því þann 12. desember að smitlaust væri á svæðinu en veiran hefur nú látið sjá sig þar á ný. Báðir aðilar sem eru smitaðir voru að koma elrendis frá í byrjun árs og greindust við landamæraskimun.
Lögreglan á Norðurlandi Eystra greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
„Eins og alþjóð veit þá er Covid maraþonið enn í gangi en við teljum okkur nú vera farin að sjá ljósið við enda ganganna. Hér á Norðurlandi eystra eru nú tvö virk smit og tveir aðilar í einangrun. Við viljum við vekja sérstaka athygli á því að þetta eru bæði smit sem tengjast landamærunum og eru aðilar sem voru að koma erlendis frá í upphafi nýs árs og greindust við hefðbundna landamæra skimun. Þeir tveir sem eru í sóttkví tengjast einnig smitum á landamærum."
Lögreglan hvetur alla til að halda áfram að sinna sínum persónulegum sóttvörnum og fylgja þeim reglum sem gilda til 12. janúar næstkomandi. Á landinu öllu eru nú 127 með virkt smit og í einangrun. Lang flest smit eru á höfuðborgarsvæðinu eða 89. Smitlaust er á Austurlandi og Norðurlandi vestra.