Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar sagði í samtali við Pál Magnússon í stjórnmála- og fréttaskýringaþættinum Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld að sú mikla hækkun á launum forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur sem kom fram nýlega væri ekki í samræmi við kjarastefnu flokksins. Hann hafi ekki rætt málið sérstaklega við samflokksmann sinn, Dag B. Eggertsson borgarstjóra og fyrrverandi varaformann Samfylkingarinnar, en stjórn Orkuveitunnar verði að gera efnislega grein fyrir þessari ákvörðun sinni. Fram hefur komið í fjölmiðlum að laun forstjórans hafa hækkað umtalsvert, eða um 1100 þúsund krónur á mánuði, úr 1200 þúsund langleiðina í hálfa aðra milljón.
.