\"Þetta er ævintýri líkast, sérstaklega ef litið er til árangurs Íslands í undankeppni stórmóta í gegnum árin. Þó svo að þetta sé eins og söguþráður í ævintýri þá er ekki um heppni að ræða heldur liggur þrotlaus vinnu að baki þessari velgengni,“ sagði Lars Lagerbäck enn fremur í viðtalinu.
\"Við getum alveg gert góða hluta í lokakeppninni. Það myndi til að mynda ekkert koma meira á óvart ef Ísland kæmist langt í keppninni en þegar Grikkir urðu Evrópumeistarar 2004. Líkurnar eru þó ekki með okkur ef við lítum raunhæft á málið. Við munum þó að minnsta kosti leggja okkur alla fram eins og við höfum gert hingað til og munum halda áfram að gera,“ sagði Lars Lagerbäck að lokum við Verdens gang.