Arna Guðmundsdóttir, formaður Læknafélags Reykjavíkur, var í viðtali á Hringbraut á sunnudaginn. Aðspurð um þetta sagði hún. „Landspítalinn getur ekki hert reglurnar og skikkað fólk til að vera í hundrað prósent vinnu. Það virkar ekki fyrir sérhæft fólk sem getur fengið vinnu hvar sem er í veröldinni. Það er ekki aðferðin.“
Um þriðjungur lækna er í fullu starfi á spítalanum, hinir eru í hlutastörfum, þar og svo á eigin stofum. Sumir þeirra sem eru í hundrað prósent stöðu á Landspítalanum er sumt hvert í öðrum störfum, svo sem við kennslu í Háskólanum.
„Það er fráleitt að halda því fram að hlutastörf lækna á spítalanum tefji og teppi flæðið er fráleitt,“ sagði Arna og bætti við að margt því sem landlæknir og stjórnmálamenn hafa sagt um þetta sé fjarstæðukennt.