„Það er klárlegt, fyrir land eins og okkur sem er eyja og byggir á því að hafa skipaflota, að við þurfum að geta sinnt honum,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri í Njarðvík í samtali við RÚV.
Litlu munaði að rússneski togarinn Orlik mundi sökkva í Njarvíkurhöfn síðustu nótt, en hann hefur legið við höfnina núna í rúm 5 ár. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem skipið er nálægt því að sökkva, en það sökk næstum því einnig fyrir tveimur árum. Fjórir unglingar voru um borð þegar skipið hóf að sökkva nú síðast og segja hafnarstjóri að mikil slysahætta sé af skipinu í því ásigkomulagi sem það er. Skipið er nú til sölu til niðurrifs og sér fyrirtækið Alasund Shipbrokers um söluna. Skipið var smíðað árið 1983, rúmir 62 metrar á lengd og tæpir 14 á breidd. Skipið er tæp 1900 brúttótonn.
Ekki hefur verið hægt að rífa niður skipið enn þá vegna skilyrða í íslenskum reglugerðum en Halldór segir að skipasmíðastöðvar á Íslandi uppfylli ekki skilyrði til að farga skipum á Íslandi stærri en 500 brúttótonn. Undanfarið hefur verið reynt að fá leyfi til að draga það inn í Helguvík til að rífa það niður, en varðskipið Þór var rifinn þar.