„ekki hægt að hlakka til verkfalla,“ segir sa

Það er ekki hægt að hlakka til verkfalla, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem segir verkfallið á morgun áfall fyrir hagkerfið. 
 

Verkfall um 700 þerna á hótelum á félagssvæði Eflingar, aðallega á höfuðborgarsvæðinu, stendur í 14 klukkustundir og hefst klukkan tíu í fyrramálið. Samtök atvinnulífsins töpuðu máli sínu gegn Eflingu fyrir Félagsdómi í dag og verkfallið er því löglegt. 

„Þetta snýst ekki um sigur eða tap,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA.

„Þetta snýst um að fá skýringar á vafaatriðum í lögunum og það er bæði atvinnurekendunum, verkalýðsfélögunum og samfélaginu öllu í hag að við fáum skýringar á því sem er óskýrt og það kemur með þessum úrskurði eða dómi í dag.“

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/ekki-haegt-ad-hlakka-til-verkfalla-segir-sa