Ekki hægt að fljúga frá landinu

Millilandaflug liggur enn niðri, en því hefur verið frestað ítrekað í morgun sakir sterkra vindhviðna sem skekja vélarnar á Miðnesheiði. Svo bálhvasst hefur verið á svæðinu að erfiðlega hefur gengið að koma fólki inn í Leifsstöðina sjálfa. Fólk bíður ýmist inni í Leifsstöð eða úti í vélunum sem vagga til og frá eins og bátar á brimskafli og hafa margir um borð haft á orði að þeir finni til sjóveiki. Innanlandsflug liggur einnig niðri, en þetta er orðinn versti vetur í sögu Flugfélags Íslands hvað varðar fjölda aflýstra flugferða. Fyrir daginn í dag hafði 313 flugferðum verður aflýst hjá félaginu frá áramótum - og einhverjar ferðir safnast á þann lista í dag.


Reyndar hefur veðráttan í vetur haft veruleg áhrif á allar samgöngur í og við landið; flutningsfyrirtækin hafa þannig ekki farið varhluta í ofviðrinu sem geysað hefur margsinnis í vetur - og hafa siglingar tafist ítrekað, ellegar að skipin hafi misst farm í sjóinn vegna ágangs sjávar. Þá hafa flutningabílar á landi margsinnis þurft að sæta færis á leið sinni yfir heiðar, eða hreinlega þurft að bíða í hálfu og heilu sólarhringana eftir að geta komist áleiðis. Í Staðarskála í Hrútafirði muna menn ekki annað eins í þesum efnum og sömu sögu er að segja úr Litlu Kaffistofunni í Svínahrauni, en þar er veturinn löngu kominn í metabækur.


Enn einn sunnan stormurinn gengur nú yfir landið, sá 57. frá áramótum og verður hans einkum vart um vestan og norðvestanvert landið. Reikna má með að hviður flengist upp undir  45 m/s fram undir hádegi undir Hafnarfjalli og við Skeljabrekku sem og víða á norðanverðu Snæfellsnesi. Einnig er byljótt í þessari átt og hviður fram yfir hádegi við Hnífsdal og Arnardal á milli Ísafjarðar og Súðavíkur sem og í Fljótum og á Siglufjarðarvegi.


Allvíða er varað við vegaskemmdum þar sem slitlag hefur skemmst í hvassviðri. Vegfarendur eru því beðnir að fara með gát.