Ekki hægt að breyta kontórum í íbúðir

Kaupmaðurinn Margrét Kristmannsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka verslunar og þjónustu segir að það skjóti skökku við að á meðan það sárvanti íbúðarhúsnæði hér á landi sé ekki hægt að breyta verslunar- og skrifstofuhúsnæði í íbúðir. Tölva ríkisins segi þar nei.

Margrét kvartar undan ósveigjanleika kerfisins í þessum efnum í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is í dag: \"Með hagræðingu í rekstri að leiðarljósi sótti fyrirtækið sem ég starfa hjá um að breyta 70 fm. skrifstofuhúsnæði á 2. hæð á Skeifusvæðinu í íbúð og fékkst jákvætt svar frá skipulagsyfirvöldum við þessum breytingum. Í snatri var send inn teikning og fyrirfram var talið að ekki þyrfti að gera mikið til að breyta skrifstofu í 2ja herbergja íbúð – allar lagnir og skipulag svo að segja til staðar. En svar skipulagsyfirvalda við teikningunni reyndist mikil vonbrigði. Samkvæmt byggingareglugerð er nú gerð krafa um að svalir fylgi öllum íbúðarbyggingum á 2. hæð og upp úr. Þessi krafa mun gera fyrirhugaða breytingar að engu enda samræmist einar svalir á húsnæðinu engan veginn stíl hússins og þessar útlitsbreytingar myndu án efa mæta andstöðu annarra eigenda.\"

Margrét segir að auðvitað sé svalir góðar til síns brúks og hugsaðar að sem flóttaleið við bruna \"en þegar brunaeftirlitið hefur hingað til talið nægja að hafa stóran opnanlegan glugga í þessu skrifstofurými,\" skrifar hún \"má velta því fyrir sér afhverju sú útleið dugar ekki þegar notkunin breytist úr skrifstofu í íbúð? Líf skrifstofufólks er varla talið verðminna en íbúa,\" spyr Margrét.

Hún vill breytingar á regluverki. \"Æ fleiri halda því fram að ýmsar kröfur í byggingareglugerðum séu komnar út fyrir öll skynsamleg mörk og eigi sinn þátt í því að halda húsnæðisverði háu hér á landi. En greinilegt er að þær koma einnig í veg fyrir að skynsamlegt sé að breyta nýtingu á auðu skrifstofuhúsnæði í litlar íbúðir sem gríðarleg eftirspurn er þó eftir,\" skrifar Margrét á hringbraut.is.