Ekki gott að vera með fléttur?

Nú hafa í það minnsta tveir flokkar sem bjóða fram til þings ákveðið að raða kynjum upp til skiptis á framboðslistum. Samfylkingin nefnir þetta núna “paralista” sem er annað heiti yfir “fléttulista” sem er gamla heitið.

Viðreisn ætlar líka að velja í efstu sætin, sitt á hvað konur og karla. Hefur ekkert orð um hvort það heiti fléttulistar eða annað. Mér er reyndar spurn af hverju nýtt nafn “paralisti” þurfi hjá Samfylkingunni Jú, það er kannski ferskara.

Í það heila þá eru íslenskir stjórnmálaflokkar svo langt frá þeim norrænu sem þeir hafa mikil samskipti við. Við mátum okkur iðulega við aðrar norrænar þjóðir. Þar er einfaldlega stillt upp á lista. Prófkjör ekki þekkt.

En þegar kemur að því að velja frambjóðendur eru íslenskir stjórnmálaflokkar að bjóða uppá ansi fjölbreyttan kokteil og ef til vill ruglandi.  Prófkjör, forval, flokksval og hvaðeina.  

Svo ekki sé minnst á þann görótta kokteil sem peningar og pólitík eru. Hafa menn nokkuð gleymt því að prófkjör kosta peninga?