Vinna er hafin við að leita að hjúkrunarfræðingum utan landsteinanna sem gætu leyst þann vanda sem Landspítalinn stendur frammi fyrir. Um 260 hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum á spítalanum.
Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar segir í samtali við RÚV að til greina komi að leita að starfsmönnum utan Evrópu. Hins vegar sé reynslan ekki góð af því að hafa erlenda hjúkrunarfræðinga í vinnu á Landspítalanum. Það sé tímafrekt og krefst þar að auki mikillar aðlögunar og þjálfunar.
Sigríður bendir á að dæmi séu um að erlendir hjúkrunarfræðingar við störf á Landspítalanum hafi verið sendir aftur á innan við viku. Reynslan gefi til kynna að erlent starfsfólk muni ekki leysa vandann sem skapast hefur á spítalanum og að öllum líkindum muni mæða enn meira á því fasta starfsfólki sem fyrir er.