Elísabet Kristín Jökulsdóttir, rithöfundur segist bjóða sig til embættis forseta Íslands þar sem hún geti sem forseti ýtt undir meiri manngæsku meðal manna í starfinu, frelsi og vellíðunar meðal manna. Segja má að slagorð hennar sé „elskaðu lífi og kjóstu það sem þú vilt“. Elísabet segir son sinn hafa samið þetta en það sé á sömu línu og hún hugsar sjálf þar sem hún segir frambjóðendur ávallt vera að skipa fólki að kjósa sig. Við þurfum að hafa viljann til að vera frjáls, meinar Elísabet. Hún segist aðspurð ekki vera að fremja neinn listrænan gjörning með framboðinu heldur sé henni mikil alvara þótt fylgið mælist ekki mikið. Elísabet er í viðtali á Hringbraut í kvöld uppúr klukkan hálf tíu.
Ekki gjörningur heldur frelsisboðskapur
Fleiri fréttir
Nýjast