Ekki fjárráð til að reka allt fangelsið

Nýja fangelsið á Hólmsheiði verður vígt í byrjun næsta árs en sakir þröngra fjárheimilda verður ekki hægt að reka nema hluta þess fyrst um sinn. Fangelsisyfirvöld ætla því að byrja á því að reka eina deild þess með 8 klefum og bæta svo við hinum 48 klefunum eftir því sem efni og aðstæður leyfa, en alls verða 6 deildir í nýja fangelsinu þegar það kemst í fullan rekstur. Þetta staðfestir Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar í samtali við hringbraut.is í dag.


Nýja fangelsið á Hólmsheiði er 3,600 fermetra bygging og skiptist í 6 megindeildir. Kostnaður við hönnun þess og smíði er 2,7 milljarðar króna. Árlegur rekstrarkostnaður er áætlaður um 400 milljónir króna. Þegar fjárheimildir fást fyrir fullri notkun þess kemur það til með að fjölga refsivistarúrræðum um 30 á landinu, en bæði Kvennafangelsinu í Kópavogi og Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg verður lokað með tilkomu nýja fangelsins, Kvennafangelsinu nú í maí, en Hegningarhúsinu að líkindum í byrjun næsta árs. Með fullri nýtingu Hólmsheiðar fjölgar vistplássum fyrir dæmda sakamenn á Íslandi úr 150 í 180. Fjölgunin mun skipta sköpum þegar fjármagn fæst til að reka allt fangelsið, að sögn Páls, en 400 fangar eru nú á biðlista eftir afplánun og hefur heldur gengið á hann undanfarna mánuði.


Páll Winkel segir það auðvitað súrt í broti að geta ekki opnað nýja fangelsið á Hólmsheiði að fullu við vígslu þess í upphafi nýs árs, en fjárlög séu með þessum hætti og við því sé í sjálfu sér ekkert að gera fyrir stofnanir samfélagsins annað en að virða heimildir sem fjárlaganefnd Alþingis setur þeim. Fangelsismálastofnun, sem hafi nú til umráða hálfan annan milljarð króna, hafi þurft að skera niður um 25% frá hruni og aðhaldskrafan sé enn til staðar; í ár beri stofnunni að skera niður um 2%.