Forsætisnefnd Alþingis mun í dag funda um Klaustursmálið svokallaða og taka til umfjöllunar innkomnar athugasemdir við niðurstöðu siðanefndar. Þetta staðfesti Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna og tímabundinn varaforseti Alþingis, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Þetta kemur fram á vef mbl.is sem fjallar ítarlega um málið.
Aðspurð sagði hún að óvíst væri hvort málið yrði til lykta leitt og því lokið á fundinum, áfram væri unnið í málinu. Það væri þó ætlunin að ljúka því sem fyrst.
Greint var frá því í gær að sex þingmenn Miðflokksins hefðu skilað inn andsvari til forsætisnefndar vegna álits siðanefndar Alþingis sem fjallaði um Klaustursmálið. Siðanefnd Alþingis skilaði áliti sínu um Klaustursmálið fyrir rúmri viku, og fengu þeir sex þingmenn sem málið varðar frest út síðustu viku til að bregðast við málinu. Hefur forsætisnefnd unnið að málinu frá því að álit siðanefndar var móttekið.
Nánar er fjallað um málið á vef mbl.is