Ekki eftir neinu að bíða

Þjóðbraut á laugardegi verður í útvarpi Hringbrautar í fyrramálið. Þátturinn byrjar klukkan tíu og stendur til hádegis, klukkan 12:00.

Gestir verða fjölmargir; Guðmundur Ólafsson hagfræðingur, Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, Theodóra Þorsteinsdóttir þingkona Bjartrar framtíðar, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Jón Páll Eyjólfsson leikari og leikhússtjóri.