Björt framtíð er ekki búin að vera segir Theodóra S. Þorsteinsdóttir fyrrum þingkona og núverandi bæjarfulltrúi í Kópavogi. Theodóra ræddi úrslit kosninganna og mat stjórnmálaástandið á Morgunvaktinni á Rás 1 á RÚV í morgun. Hún telur að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að fara í naflaskoðun.
Theodóra boðar að Björt framtíð muni áfram eiga öflugan sveitarstjórnarflokk árið 2018. Vissulega var samstarfið í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokknum erfitt sökum þess hve naumur meirhlutinn var. Reiði Sjálfstæðisflokksins eigi sér enga stoð. Trúnaðarbrestur hafi sprengt stjórnina.
Theodóra sagði að hún hafi orðið undir í bankakrakkinu árið 2008 og því hafi hún þurft að berjast fyrir sínu. Á meðan sat Bjarni Benediktsson forsætisráðaherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hinu megin við borðið.
Í huga Theodóru var Bjarni alveg frá upphafi á skilorði út af trausti. Alveg frá fyrsta degi.
En Björt framtíð hafi ákveðið að treysta Bjarna. En að hann hafi ekki mátt bregðast. Aldrei sagði Theodóra. Bjarni brást og því fór sem fór.