Oddviti vinstri grænna í Reykjavík og forseti borgarstjórnar, Sóley Tómasdóttir, ætlar á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í kvöld að leggja til breytingu á mannréttindaráði þegar kosið verður í ráðið.
Þetta kemur fram í frétt á visir.is
Segir þar að breytingin verði sú að Sóley verði sjálf nýr formaður ráðsins og taki við af flokkssystur sinni hjá vinstri grænum, Líf Magneudóttur.
„Samkvæmt heimildum Vísis hafa samskiptaerfiðleikar verið á milli Lífar og Sóleyjar um langa hríð en sú síðarnefnda sigraði með minnsta muni í forvali flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2014. Hlaut Sóley 153 atkvæði en Líf 152 atkvæði,“ segir í frétt vísis sem lesa má hér.
Frægt var þegar borgarfulltrúar framsóknar í Reykjavík ræddu hnífstungur í bakið og jafnvel heilu hnífasettin en eftir því sem Hringbraut kemst næst hafa svona mál ekki komið upp áður innan VG hjá borginni.