Framkvæmdastjóri Samtakanna 78, Auður Magndís Auðardóttir, segir að árásin á skemmtistað hinsegin fólks í Orlando í Flórída sé afleiðing kerfisbundinna og fordómafullra viðhorfa til hinsegin fólks. Auður Magndís fagnar því að hér á landi sé lögreglan farin að skrá hatursglæpi með skipulögðum hætti.
Auður Magndís segir í viðtali á Hringbraut að árásin í Orlando Flordia í gærmorgun hafi vakið upp mikla umræðu þvert á landamæri um stöðu hinsegins fólks í heiminum. Hún segir að verið sé að drepa málum á dreif með fréttaflutningi sem segir þetta einfaldlega hafa verið andlega veikur árásarmaður.
Í gækvöldi héldu samtökin minningar- og friðarstund saman í Úteyjar minningarlundinum í Vatnsmýrinni. Tendruð voru ljós til minningar fórnarlamba árásarinnar og veitti fólk hvort öðru von og samstöðu.
Víða um heim ríkir sorg vegna árásarinnar í Orlandi í Flórída í gærmorgun. 50 létust og yfir fimmtíu eru særðir. Hér heima hefur Reykjavíkurborg flaggað regnbogafánanum, tákni margbreytileikans. Eiffelturninn er lýstur upp í regnbogalitunum í kvöld og þá hafa Skotar hafa flaggað regnbogafánanum í hálfa stöng fyrir framan opinberar byggingar til minningar um fórnarlömb skotárásarinnar.
Skotárásin er sú mannskæðasta í sögu Bandaríkjanna. Ársarmaðurinn féll en var bandaríkjamaður af afgönskum uppruna, réðist inn á skemmtistað hinsegin fólks aðfaranótt sunnudags og byrjaði að skjóta.
Árásarmaðurinn ku hafa verið drifinn áfram af hatri á samkynhneigðum en var einnig veikur á geði.
Þetta hefur vakið mikla bylgju samúðar um allan heim og þvert á ríki og minnir hinsegin fólk á að enn sé ekki allt með felldu gagnvart þeim.