Kristinn Hrafnsson hefur skrifað pistil þar sem blaðamanninum góðkunna og talsmanni Wikileaks þykir ýmislegt standa á haus í annars okkar ágæta samfélagi.
Í færslu sem hefur verið deilt í gríðarlegum mæli á facebook fer fréttamaðurinn yfir mótsagnirnar.
„Á meðan ofbeldisbrotum fækkar jafnt og þétt á Íslandi telja menn skyndilega brýnt að vígvæða lögregluna,“ skrifar hann en nýjar tölur um fjölda ofbeldisbrota og þá ekki síst gegn lögreglu sýna að brotum hefur fækkað ólíkt því sem margir halda.
„Á meðan ríkisstjórnin þverneitar valdaafsali til ESB ætlar hún að afsala völdum til alþjóðegra stórfyrirtækja með TISA,“ bætir Kristinn við, TISA er fyrirbæri sem gæti höggvið nærri innviðum samfélaga og fært völd yfir til einkaaðila.
„Á meðan þjóðin er skelfingu lostin yfir smáhópi flóttamanna hefur hún engar áhyggjur af yfir milljón ferðamönnum,“ bætir Kristinn við og þarfnast ekki frekari skýringa.
„Á meðan ríkisstjórnin lofar 40% minnkun gróðurhúsalofttegunda á að byggja upp stóriðju með 20% aukningu.“ Á þessar ótsagnir hefur verið bent á m.a. í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut.
„Á meðan ráðherra vill slökkva á internetinu til að stöðva hatursorðræðu, halar flokkur hans inn atkvæðum á henni,“ skrifar Kristinn svo en Eygló Harðardóttir hefur boðað sókn sem Birgitta Jónsdóttir telur aðför að tjáningarfrelsinu.
Og fréttamaðurinn klikkir út með því að vísa í tölur sem skópu mikla umræðu á dögunum:
„- Svo er einhver hissa á því að ungt fólk sé að flýja þetta partí.“