Davíð hjólar í borgarstjóra: borgarbúar til fyrir dag, en ekki öfugt

Í staksteinum Morgunblaðsins í dag er þjónustuhlutverk Reykjavíkurborgar harðlega gagnrýnt og borgin sögð hafa fjarlægst þjónustuhlutverk sitt gagnvart borgurum. Má ætla að þar haldi ritstjóri Morgunblaðsins, Davíðs Oddsson á penna.

Gagnrýnin kemur í kjölfar þrettándans sem var á mánudaginn síðastliðinn en sú hefð hefur myndast hér á landi að heimili taki niður „lifandi“ jólatré og þeim fargað. Á árum áður þjónustaði Reykjavíkurborg, í samstarfi við íþróttafélög borgarinnar og Sorpu, íbúa Reykjavíkur með förgun jólatrjáa með því að safna þeim saman á auglýstum tímum og henda en í samtali við Hringbraut var sú þjónusta lögð niður í janúar árið 2010 og ekki hefur verið rætt um að hefja hana aftur.

„Árið 2009 var seinasta árið sem jólatrén voru tekin. Þá var send út frétt frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur, sem þá hét og var, og þar var sagt að íþróttafélögin og sorphirðufélög myndu taka jólatrén. Þau muni bjóða upp á þjónustu að sækja jólatrén og er sagt að þetta sé í samvinnu við Reykjavíkurborg og að íþróttafélögin noti þetta sem fjáröflun,“ segir Einar Guðmarsson starfsmaður Reykjavíkurborgar í samtali við blaðamann.

„Þau sveitarfélög sem hafa þjónustuhlutverkið í öndvegi, enda aðalhlutverk sveitarfélaga, safna trjám frá íbúum á auglýstum tíma og farga þeim. Sá háttur var áður hafður á í Reykjavík. Því hefur verið hætt, enda hafa yfirvöld í Reykjavík hin síðari ár fjarlægst þjónustuhlutverk sitt með hverju ári sem líður og virðast hafa á því illan bifur,“ segir í Morgunblaðinu í dag.

Þá er gagnrýni Morgunblaðsins beint á borgarstjóra Reykjavíkur og liðsins í kringum hann.

„Að borgarbúar séu til fyrir hann, en ekki öfugt og að honum skuli þjónustan beinast. Þennan þráláta misskilning hans þyrfti að leiðrétta við fyrsta tækifæri.“

Aðspurður um þá þjónustu sem íbúar borgarinnar geti nýtt sér í dag viðurkennir Einar að hann þekki þetta ekki nógu vel sjálfur.

„Íþróttafélögin hafa boðið eitthvað upp á þetta en ég verð að viðurkenna að ég þekki þetta ekki sjálfur. Það er svo skrítið af því að ég er búinn að vera í þessu í svolítinn tíma og þetta er ekkert vandamál. Auðvitað er eitt og eitt jólatré sem fýkur og við tökum þau að sjálfsögðu upp en þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel þetta verkefni. En þetta er góð spurning, ég virðist ekki finna þetta sjálfur. Ef ég ætlaði núna að finna út úr því hvern ég gæti fengið til þess að gera þetta fyrir mig af hverju dúkkar þá ekki neitt upp?“ Segir Einar.

Blaðamaður benti þá Einari á að ekkert væri finna um þjónustuna og það væri m.a. ástæðan fyrir gagnrýni í Staksteinum.

„Já þetta er nú svolítið góð pæling ég verð að viðurkenna það. Sjálfur er ég með gervitré og hef því ekki notað þessa þjónustu,“ segir Einar og bætir við: „Ég ætla aðeins að skoða þetta betur og forvitnast hvort ég geti fundið út úr því hvort Reykjavíkurborg sé með einhverja „linka“ á þessa þjónustu eða hverjir það eru sem hjálpa manni.“

Einar segir málið ekki hafa verið tekið fyrir aftur eftir að þjónustan var lögð niður og það liggi ekki á borði borgarstjóra eins og staðan er núna. 

Í kjölfar vinnslu fréttarinnar hafði Einar samband við blaðamann aftur með frekari upplýsingar um málið en svo virðist vera að vandamálið hafi leyst sig sjálft á þeim tíma sem liðinn er frá því að Reykjavíkurborg lagði þjónustuna niður.Í dag sé það í höndum íþróttafélaga borgarinnar að auglýsa og farga jólatrjánum fyrir þá íbúa sem óska eftir því. Gámafélögin og Reykjavíkurborg taka ekki lengur þátt en ágóðinn sem íþróttafélögin safna renna til þeirra. Einar segir þjónustuna lítið auglýsta og að hún fari aðalega í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook og þar til gerðar íbúa-síður sem þar myndast gjarnan.