Ekki til verðmat á sendiherrahúsum

Ekkert formlegt verðmat er til á sendiherrabústöðum Íslendinga á erlendri grundu að því er fram kemur í svari Utanríkisráðuneytisins til upplýsingaveitunnar spyr.is. Samkvæmt umsögn ráðuneytisins á íslenska utanríkisþjónustan fasteignir í 12 löndum; Bandaríkjunum, Kanada, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu, Sviss og Tókýó.


Fasteignarnar eru allar nýttar fyrir sendirráð og sendiskrifstofur erlendis og er rekstrarkostnaður um 3 milljarðar á ári samkvæmt fjárlögum. Margar þessara fasteigna eru sagðar í nokkuð dýrum hverfum en þegar ráðuneytinu barst fyrirspurn um verðmæti þeirra kom sem fyrr segir fram að hálfu hins opinbera að slíkt verðmat væri ekki til. Orðrétt er svar ráðuneytisins á þessa leið: "Sumar þessara eigna voru keyptar fyrir mörgum áratugum þannig að kaupverðið lýsir ekki raunverulegu verðmæti. Ekkert formlegt verðmat er til."


Þessar eignir ríkissjóðs virðast samkvæmt svarinu því vera óskráðar í opinberu bókhaldi.


Viðhald þessara fasteigna var áætlað í fjárlögum 31 milljón króna fyrir árið 2014, sem er svipaður kostnaður og árin á undan. Nánari sundurliðun á rekstrarkostnaði sendiráða erlendis má sjá í fyrrgreindu svari til upplýsingaveitunnar spyr.is, en frekar verður fjallað um verðmæti sendiherrabústaða Íslendinga erlendis á hringbraut.is á morgun.