Einn reyndasti fjalla- og leiðsögumaður landsins, Páll Ásgeir Ásgeirsson varar fólk við því að kaupa hvaða útivistarfatnað sem er til nota við íslenskar aðstæður. Í raun og sann sé ekkert sem toppi íslenska lopann upp um fjöll og firnindi.
Páll Ásgeir var gestur Sigmundar Ernis í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld þar sem hann talaði meðal annars um mikilvægi þess að klæða sig í réttan fatnað áður en haldið er í göngu út í guðs græna náttúruna. Oft og tíðum hafi hann rekist á útlenda göngumenn upp til fjalla við misjafnar kringumstæður sem iðulega hafi spurt hann hverju Íslendingar eiginlega klæðist í óbyggðum. Raunin hafi þá gjarnan verið sú að þetta fólk hafi mætt til landsins í útlenskum hlífðarfatnaði sem ekkert tillit taki til þess heimskautaveðurlags sem ríki hér á norðurhveli jarðar; íslensk veður fari nefnilega í gegnum flest öll föt og klæði. Meginreglan eigi að vera þessi; kaupið útivistarfatnað frá norrænum framleiðendum, íslenskum eða skandinavískum en hönnun þeirra og efnisval taki ávallt mið af jafn erfiðum aðstæðum og er að finna í þessum heimshluta. Og svo er hitt, bendir Páll Ásgeir á, þrautreyndur af ferðum sínum þvert og endilangt um landið í öllum veðrum og enn fleiri vindum; ekkert toppar íslenska lopann til fjalla, ef það er einhver klæðnður sem hann hafi beinlínis tekið ástfóstri við þá sé það blessuð ullin, jafnt á höndum, höfði og um skrokkinn allan ef því sé að skipta. Það séu engir vettlingar eða húfa sem gagnist betur en gömlu góðu ullargarmarnir hér við ysta haf að mati kappans sem veit þar vel hvað hann syngur.
Hægt er að horfa á Lífsstíl í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og einnig klippur úr þættinum á forsíðu vefjarains.