„Ég held að það sé nokkuð augljóst að næsta skref hjá okkur verði að meta stöðuna og taka næsta skref í þessu og þá væri það náttúrulega að undirbúa einhvers konar átök ef ekkert annað breytist. Og það hefur ekkert gerst um helgina sem hefur gefið tilefni til neinnar bjartsýni í þessu.“
Þetta segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og formælandi samflots iðnaðarmannafélaga sem telur um 16 þúsund manns, í samtali við RÚV. Vísar hann þar til kjaraviðræðna félaganna við Samtök atvinnulífsins.
„Við munum taka næsta samningafund, sem verður væntanlega á morgun eða í dag í fyrsta lagi, og við munum meta stöðuna út frá þeim fundi. Ef það gerist ekkert á þeim fundi munum við þurfa að taka þessa ákvörðun,“ segir Kristján Þórður.
Hann telur líklegt að iðnaðarmannafélögin stefni í sömu átt og Starfsgreinasamband Íslands, sem tilkynnti fyrir helgi að það hyggist slíta viðræðum við SA komi ekki fram nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá SA. „Já, þetta er þessi stefna sem er að komast í málin, heyrist mér, hjá flestum að menn séu bara komnir í þrot í þeim viðræðum sem hafa verið í gangi.“ Kristján Þórður segir að iðnaðarmenn geti ekki sætt sig við þau skilyrði sem Samtök atvinnulífsins hafi sett fram.