Páll Halldórsson formaður samninganefndar Bandalags háskólamanna kveðst ekkert skilja í fálæti samninganefndar ríkisins sem hefur ekki lagt fram eitt stakasta tilboð í kjaradeilunni í átta vikur samfellt.
Páll segir það vera eðlilegasta hlut í viðræðum af þessu tagi að viðsemjendur komi á viðræðutímanum fram með einhver tilboð sem ef til vill sé svo hafnað, en nú beri nýrra; ríkið geri ekki neitt til að koma til móts við þúsundir félagsmanna BHM sem verið hafa í verkfalli í á að giska tvo mánuði með mjög alvarlegum afleiðingum víða í samfélaginu, en þó ekki síst í heilbrigðiskerfinu þar sem það starfsfólk sem vinni á undanþágum sé fyrir margt löngu orðið uppegið sakir vinnuálags og jhyggist margt hvert segja upp starfi sínu eins og dæmin sanni.
Stjórn BHM vísar ábyrgð á afleiðingum verkfallsins að fullu á hendur ríkisvaldinu sem sýni starfsfólki sínu fálæti og lítilsvirðingu með þessari framkomu. Félagsmenn séu reiðubúnir að vera í verkfalli eins lengi og þurfa þykir og mikill hugur sé í þeim eins og vel hafi sést á samkomum þeirra nýverið; framkoma ríkisins herði þá til muna.