"Það gerðist nákvæmlega ekkert," sagði Páll Halldórsson formaður BHM eftir fundahöld með viðsemjendum bandalagsins hjá Ríikissáttasemjara undir kvöld, en hundruð félagsmanna þess hafa lagt niður vinnu til að leggja áherslu launakröfur sínar.
Verkfalls BHM gætir víða í samfélaginu, einkum og sér í lagi í matvælaframleiðslu, en eftirlitskerfi Matvælastofnunar er nánast lamað vegna vinnustöðvunarinnar sem merkir að slátrun dýra ásamt innflutningi og útflutningi matvæla sem háð eru smitsjúkdómavörnum fær ekki lengur grænt ljós kerfisins.
BHM hefur gefið undanþágu frá vinnustöðvuninni svo félagsmenn þeirra hjá Fjársýslu ríkisins geti greitt út barnabætur á réttum tíma á næstu dögum, en að öðru leyti er bandalagið sparsamt á leyfi til vinnu í verkfallinu.
Samningamenn BHM segjast mjög svartsýnir á að einhver árangur verði af viðræðum í bráð.