„ekkert sem skipti máli“

Nú hefur komið í ljós að Bjarni Benediktsson seldi rúmlega fimmtíu milljón króna eign í Sjóði 9 hjá Glitni síðustu dagana fyrir hrun.

Heimir Már Pétursson ræddi viðskipti við Bjarna á sínum tíma í þættinum Víglínunni á Stöð 2 og klykkti út með þessari spurningu:

„En þú sjálfur persónulega – tókst þú eitthvað út á þessum síðustu dögum? Áttirðu eitthvað í þessum sjóði?“

Svar Bjarna: „Ekkert sem skipti máli. Ég átti á sínum tíma eitthvað í Sjóði 9, en ég man ekki eftir að það hafi verið eitthvað sem að ... mig rekur minni til að hafi skipt máli.“