Ekkert sem réttlætir að taka þessa áhættu

„Því miður þurfum við alltaf að minna okkur á að tileinka okkur þá hegðun að þetta trufli okkur ekki vegna þess að það er ekkert sem réttlætir það að við tökum þessa áhættu. Þetta er alveg rosaleg áhætta sem við erum að taka og við virðumst ekki nægilega mörg gera okkur grein fyrir því. Þess vegna erum við eitt skiptið enn, og vonandi í síðasta skiptið sem við þurfum að gera þetta, að hrinda af stað þessu átaki Höldum fókus,“ segir Einar Magnús Magnússon, sérfræðingur hjá Samgöngustofu.

Höldum fókus átakið miðar að því að fá fólk til að hætta notkun snjallsíma við akstur. Samgöngustofa, Strætó, Sjóvá standa að átakinu með faglegri og tæknilegri leiðsögn Tjarnargötunnar.

Einar Magnús og Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, eru gestir Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 í kvöld, þar sem þeir ræða átakið.

„Þetta er gríðarlegt vandamál og eitthvað sem við öll þekkjum og okkar vagnstjórar ekkert endilega því fráskildir. Þess vegna finnst okkur mikilvægt að vera þátttakandi í þessu, minna á að við erum áberandi í umferðinni. Okkur fannst við passa sérstaklega vel við átakið þar sem Strætó er einn af fáum fararskjótum þar sem þú mátt vera í símanum í umferðinni,“ segir Guðmundur Heiðar um af hverju Strætó hafi ákveðið að taka þátt í átakinu að þessu sinni.

Ein algengasta orsök banaslysa í Bandaríkjunum

Einar Magnús fullyrðir að öll höfum við gerst sek um að líta á símann okkar við akstur. Flest okkar virðast vita af áhættunni en sumir ákveða samt að taka hana. „Þetta er ekki nógu gott ennþá. Viðhorfskönnun sem við hjá Samgöngustofu höfum verið að gera á undanförnum árum og Gallup gerði núna í lok síðasta árs leiðir í ljós að allir, allir af u.þ.b. þúsund manna úrtaki, segja að þetta sé hættulegt, 75 prósent segja að þetta sé stórhættulegt. Samt eru það 25 prósent sem láta þetta eftir sér, að nota símann með einum eða öðrum hætti á meðan akstri stendur og skerða þar með athygli sína og stofna sjálfum sér og öðrum í stórhættu,“ segir hann.

„Þetta er orðin ein algengasta orsök banaslysa í Bandaríkjunum. Þar er algengara að ungmenni í umferðinni látist af völdum farsímanotkunar heldur en ölvunar. Yfir langt tímabil hér á Íslandi er ölvun orsök um 20 prósent banaslysa. Þannig að þetta er ekkert smá mál.“ segir Einar Magnús einnig.

Nánar er rætt við Einar Magnús og Guðmund Heiðar í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.