Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar ekkert hafa rætt við forystu stjórnarandstöðunnar um hvernig haga beri þingstörfum nú í haust, en þingið kemur saman til funda í næstu viku.
Oddný segir óþolandi að enn sé óvissa um hvenær kosið verði til þings og ljóst sé að ef kjördagur liggi ekki fyrir muni þingið herja á að fá að vita hvenær kosið verður.