Ekkert mál að hætta í hassinu

Það var ekki eins og tónlistargoðsögnin Gunnar Þórðarson væri að fela breyskleika ævi sinnar í viðtalsþætttinum Mannamáli á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld, en þar sagði hann Sigmundi Erni afar opinskátt frá vímuárunum í lífi sínu. Þau hófust á hátindi Hljóma þegar erlendur upptökustjóri kynnti meðlimum grúppunnar fyrir áhrifum hassins - og eins og Gunnar sagði í samtalinu; fyrst sjálfir Bítlarnir dásömuðu þetta efni á þeim tíma og sögðu það skipta tónlistarsköpunina millu máli, af hverju þá ekki líka strákarnir frá Keflavík?


Árin í Trúbrot frá 1969 til 1973 voru nokkuð þokukennd að þessu leyti eins og Gunni upplýsti í viðtalinu og kannski sé þar komin skýringin á því að á þeim kafla ævinnar skrifaði hann lítilvægustu sönglög sín. Ruglið á Trúbrot á þessum tíma hafi líka verið áberandi; liðsmenn ýmist að yfirgefa bandið og aðrir að koma inn, ellegar að fyrri meðlimir hafi óforvarindis birst aftur og hinir sem fyrir voru farið út.


Um hassið segir hann: Það var ekkert mál að hætta. Hann hafi í reynd verið guðs lifandi feginn að gefa hassið upp á bátinn eftir Trúbrotsárin, ja ... hassið og hvað þetta allt saman var sem hljómsveitarmeðlimirnir reyktu allir á þessum árum; hann muni ekki nafnið á því öllu! Og síðan þá hafi hann ekki einu sinni drukkið vín, hvað þá meira - fengið upp í háls; ákveðið að hætta öllu þessu rugli og einbeita sér fremur að tónlist sinni af fullum krafti án þess að þurfa að heimsækja einhvern annan og óljósan heim þess á milli.


Hægt er að nálgast þetta opinskáa og persónulega viðtal við Gunnar í heild sinni á hringbraut.is og klippur úr því á forsíðu vefjarins.