Ekkert lát er á fasteignakaupum Íslendinga á Spáni, einkum og sér í lagi á Hvítu ströndinni, þar sem heitir Costa Blanca á suðaustanverðu sólarlandinu, skammt sunnan Alicante.
Það er enda svo að fjölbreytilegustu íbúðahverfi eru að rísa á þessum veðursælasta stað Spánar, í nágranni saltvatnsins sem skapar einstaklega milt veðurlag á þessum slóðum - og heilnæmt, segja menn, sakir uppgufunar úr því eins og rannsóknir hafa sýnt fram á.
Eitt þessara íbúðasvæða er Las Colinas sem hverfist um samnefndan og margverðlaunaðan golfvöll í hæðunum upp af Hvítu ströndinni, en þar hafa risið um 500 nýtískulegar íbúðir á síðustu árum, aðrar 500 eru í byggingu - og enn aðrar 500 ku vera á teikniborðinu.
Og svæðið er ekki bara vinsælt sakir loftslags, eins og vel kemur fram í sjónvarpsþættinum Lífið á Spáni sem frumsýndur er á Hringbraut í kvöld, heldur allrar aðstöðu sem þar er að finna, hvort heldur er í mat og drykk á viðráðanlegu verði, ellegar afþreyingu á hagstæðum kjörum - og þar kemur einn af tíu bestu Miðjarðarhafsvöllum Spánar sterkur inn og skorar hátt hjá kröfuhörðum kylfingum.
Í þættinum í kvöld slæst Sigmundur Ernir og kona hans Elín Sveinsdóttir í hóp með pga-golfkennaranum geðþekka, Sigurði Hafsteinssyni og spúsu hans Björgu Baldursdóttur og prófa þennan rómaða völl sem er á meðal 100 bestu golfvalla álfunnar, en þess utan kynnast áhorfendur fasteignamöguleikunum í kringum völlinn sem einn af viðmælendum þáttarins, Aðalheiðir Karlsdóttir hjá Spánareignum gjörþekkir, enda er hún búin að selja eignir á svæðinu í tuttugu ár og er þar hokin af reynslu.
Lífið á Spáni hefst klukkan 20:00 í kvöld, en þættirnir eru raunar tveir, sá seinni fer í loftið að viku liðinni. Kvikmyndatöku og klippingu annast Ólafur Kristjánsson og upptökustjórn er í höndum Elínar Sveinsdóttur.