Ekkert kerfi grípur fórnarlömb vinnumansals

Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, segir að skjólstæðingur sambandsins, maður af erlendu bergi brotinn, hafi verið á vegum ASÍ í meira en hálft ár og sé ennþá á vergangi. Þetta sé þrátt fyrir að sambandið geti sýnt fram á að skjólstæðingurinn hafi orðið fyrir alvarlegum brotum af hálfu atvinnurekanda. „Sem reyndar hætti ekki einu sinni eftir að hann var hættur störfum heldur hefur hann verið hundeltur þar á eftir. En hann er meira og minna á vergangi, það er ekkert kerfi sem hefur gripið hann,“ segir Halldór.

Halldór var hluti af starfshópi sem innihélt aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda og lagði á dögunum fram tillögur til að sporna við brotastarfsemi á vinnumarkaði. Ein af tillögunum lýtur að því að tryggja viðeigandi aðstoð og vernd fyrir fórnarlömb vinnumansals og nauðungarvinnu.

Halldór var gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld, þar sem hann ræddi tillögurnar og nauðsyn þess að hrinda þeim í framkvæmd.

„Ég vil nefna það sem lýtur að vinnumansali og aðgerðaáætlun gegn vinnumansali. Þá erum við að tala um að skoða löggjöfina, hvort að það er hægt að breyta þessari skilgreiningu á mansali og vinnumansali. Það er þannig að allan síðasta áratug hafa eingöngu þrjú mál af slíkum toga verið kærð og eitt farið alla leið í gegnum dómskerfið. Við vitum hins vegar að staðan er mikið alvarlegri en það,“ segir Halldór einnig.

Hann segir nauðsynlegt að hjálpa fólki sem verður fyrir vinnumansali og/eða nauðungarvinnu: „Síðan er aðgerðaáætlun sem gengur út á það að veita þeim sem fyrir þessu verða skjól og stuðning og ég verð nú bara að segja eins og er að eins og staðan er núna þá er ástandið algjörlega óásættanlegt hvað þetta varðar.“