Ekkert stöðvar verkfall á miðnætti

Forvígismenn Landspítalans búa sig undir verkfall á  annað þúsund hjúkrunarfræðinga á miðnætti og hefur helgin verið notuð til að senda þá sjúklinga heim sem teljast ekki vera bráðveikir.


Forystumenn Félags hjúkrunarfræðinga segjast allt eins búast við löngu verkfalli; samninganefnd ríkisins virðist í þeirra augum lítinn áhuga hafa á að koma til móts við kröfugerð heilbrigðisstétta á spítalanum í takti við það sem læknar fengu í vetur: greinilega eigi að meta eina menntun öðrum mikilvægari að mati þeirra sem nú stjórna samningsgerðinni af hálfu ríkisins.


Af 1600 stöðugildum hjúkrunarfræðinga eru 500 á undanþágulista vegna bráðaverkefna á spítalanum og því munu 1100 hjúkrunarfræðingar hætta störfum á miðnætti, en það hefur veruleg og víðtæk áhrif á starfsemi spítalans sem getur ekki með góðu móti sinnt öðrum sjúklingum en þeim sem þurfa bráðnauðsynlega á þjónustu hans að halda.


Þessi vandræði bætast við þau sem fyrir eru af völdum vinnustöðvunar geislafræðinga og lífeindafræðinga innan raða Bandalags háskólamanna sem hafa verið í verkfalli vel á annan mánuð. Þá eru ljósmæður á Landspítalanum, sem eru innan BHM, einnig í aðgerðum en þjónusta þeirra er takmörkuð, önnur en sú sem lítur að beinum fæðingum.