Ekkert flugslys hérlendis á síðasta ári

Ekkert flugslys var skráð hérlendis árið 2018 og hefur það ekki gerst í um hálfa öld, eða síðan árið 1969. Ekkert banaslys hefur orðið í flugi hér á landi síðan árið 2015. Fréttablaðið greinir frá.

„Það er auðvitað samspil allra sem koma að flugöryggismálum hversu vel hefur tekist síðustu ár. Öllum þeim sem vinna að flugöryggi, hvort sem það eru flugmenn, flugvallarstarfsmenn eða aðrir, ber að þakka að ekkert flugslys varð á árinu,“ segir Þorkell Ágústsson, formaður flugsviðs rannsóknarnefndar samgönguslysa í samtali við Fréttablaðið.

„Þetta er sérstakt gleðiefni fyrir bæði flugmenn og annað fólk á flugsviði sem hefur unnið ötullega að flugöryggismálum undanfarna áratugi. Þetta er jafnframt þriðja árið í röð þar sem engin banaslys hafa orðið í flugi, og vonumst við til að með áframhaldandi áherslu á öryggismál náum við að halda slysatíðni í algjöru lágmarki,“ segir Lára Sif Christiansen, framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í samtali við Fréttablaðið.

Fimm banaslys hafa orðið í flugi síðastliðinn áratug; eitt árið 2009, eitt árið 2012, eitt árið 2013 og tvö árið 2015. Alls létust sjö í slysunum.