Ekkert fjármagn fyrir einkarekin heilbrigðisfyrirtæki

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir fjármagn ekki vera fyrir hendi til þess að gera samninga um þjónustu við Klíníkina eða önnur einkarekin heilbrigðisfyrirtæki. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag og á mbl.is.  Ummæli ráðherra koma eftir að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Ísólfur Gylfi Pálmason fyrrverandi alþingismaður gerðu athugasemd við að fjármunum Sjúkratrygginga væri varið í dýra mjaðmaaðgerð erlendis vegna þess hve biðlisti væri langur þrátt fyrir að sömu aðgerð hefði verið hægt að framkvæma fyrir minna fé í Klíníkinni eða á annarri einkarekinni stofnun.

Í frétt Morgunblaðsins mun heilbrigðisráðherra hafa sett í gang vinnu við  „öfluga“ forgangsröðun með þeim stofnunum sem hljóta fjármagn frá heilbrigðisráðuneytinu. Forgangstöðunin verði til að hinir verst settu þurfi ekki að leita í dýrari þjónustu með almannafé vegna óralangs biðtíma.