Það er allt eins gott að leggjast undir feld um helgina því veðrið kallar engan veginn á útivist ellegar ökuferðir um götur og þjóðleiðir. Ekkert ferðaveður verður um helgina ef marka má hugleiðingar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Að vísu verður einhver stund milli stríða í dag, en dagurinn byrjar þó á suðvestanstórhríð á Norðvesturlandi og þar verða léleg ferðaskilyrði í dag. Að sögn veðurfræðings má búast við því að élin haldi áfram suðvestanlands, en um hádegi dregur vel úr vindi og úrkomu og má þá búast við skaplegu veðri á öllu landinu fram á kvöld þegar kröpp lægð kemur upp að landinu og gengur í austan storm með snjókomu syðst.
Og það er einmitt þessi lægð sem á eftir að leika landsmenn grátt um helgina því flest bendir til þess að hún muni hringsnúast um landið en henni fylgir slæmt vetrarveður í öllum landshlutum.
Á morgun, laugardag, spáir veðurstofan stormi eða jafnvel roki þar sem meðalvindhraði fer yfir 25 metra á sekúndu. Snjókoma er í kortunum, skafrenningur og \"því ekkert ferðaveður í kortunum,“ eins og það heitir á Veðurstofumáli, en þar á bæ er fólk hvatt til að fylgjast vel með veðurspám þar sem lítil breyting á staðsetningu lægðarinnar getur skipt miklu máli í staðbundnum áhrifum