Ekkert ferðaveður suðvestanlands

Afar kröpp lægð leikur landsmenn grátt í dag, en björgunarsveitir og lögregla hafa ekki haft undan í morgun vegna fjölda útkalla, einkum vegna fjúkandi þakplatna og lausra hluta, en þá ekki síður sakir vatnstjóns, en víða eru vegir og hringtorg á kafi, svo sem í Mosfellsbæ þar sem ekkert ferðaveður er. Lögregla hefur þurft að grípa til þess ráðs að loka fjölförnum götum í Reykjavík í morgun, til dæmis Miklubraut þar sem skæðadrífa af lausum hlutum, þar á meðal innkaupakerrum fór um með látum. Eins varð að loka vegum í Grafarvogi í morgun vegna þakplatna sem voru að fjúka af Egilshöll.


Ofsaveðrið í morgun hefur náð allt frá Eyjafjöllum í austri og vestur á land þar sem vindhviður hafa reglulega farið yfir 40 m/s. Björgunarsveitir fyrir austan fjall hafa verið í sömu önnum og starfsbræður þeirra á höfuðborgarsvæðinu. 


Veðustofan geri ráð fyrir því að heldur dragi úr vindofsanum upp úr hádegi á suðvestanverðu landinu og það sama gildir um önnur landsvæði síðdegis. Suðvestan hvassviðri verður þó fram á kvöld með slyddu og éljagangi.