Hætt er við því að ökumenn á suðaustanverðu landinu verði að halda fast í stýrið á bifreiðum sínum í dag, ellegar halda sig heima við, því hávaðarok verður á svæðinu í dag.
Vegagerðin varar við óveðrinu með þessum orðum á vef sínum í dag: \"Vaxandi vindur af NA á landinu í dag. Við þær aðstæður verða snarpir hnútar 30-35 m/s allt til kvölds suðaustanlands, s.s. í Öræfasveit, en eins í grennd við Hornafjörð og Hvalnes. Síðdegis og í kvöld einnig hviður þvert á veg á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þá er varað við sandfoki á hálendinu sérstaklega á Sprengisandsleið og svæðinu norðan Landmannalauga.\"