Ekkert ferðaveður - bálhvasst á landinu

Vonskuveður er í flestum landshlutum og vegir meira og minna ófærir eða lokaðir. Starfsmenn Vegagerðarinnar vara fólk við að vera á ferði og benda á að djúp óveðurslægt sé skammt fyrir austun land og hún valdi norðan storminum.
 
Veður gengur ekki niður fyrr en lægðin fjarlægist í kvöld og nótt. Stórhríð verður fyrir vikið víða á norðanverðu landinu í allan dag, en skafrenningur og blint sunnantil. Af þessum sökum hefur innanlandsflug hefur raskast í morgun.
 

Vegir um Hellisheiði, Sandskeið og Þrengsli eru lokaðir, eins er lokað um Kjalarnes og Mosfellsheiði, ekkert ferðaveður er á þessum slóðum. Hált og skafrenningur er á Reykjanesbraut. Lögregla á höfuðborgarsvæðinu beindi í morgun þeim tilmælum til fólks í Grafarvogi og Grafarholti að halda sig innan dyra fram eftir degi vegna veðurs og ófærðar í hverfunum. Þar hafa björgunarsveitir verið að störfum í morgun. Helst við að hjálpa fólki heim sem hafði fest bíla sín. Bárujárnsplötur og ýmislegt lauslegt hefur fokið í borginni.

Veginum til Súðavíkur hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu. Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli eru lokaðir vegna snjóflóðahættu.

Flugfélag Íslands hefur frestað flugi til Akureyrar sem átti að fara frá Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum vegna veðurs. Aðstæður verða kannaðar aftur klukkan eitt og þá kemur einnig í ljós hvað verður ákveðið með síðdegisflugið sem á að fara í loftið klukkan tvö og rétt fyrir fimm. Ekki verður flogið til Ísafjarðar vegna veðurs.

Ekki er ljóst hvort flogið verður til Egilsstaða í kvöld, staðan verður athuguð rétt fyrir klukkan fjögur.